Vinaslagur 4 hjá Vinaskákfélaginu verður mánudaginn 28 nóvember á Aflagranda 40 kl. 16:00.
Þetta er fjórða og síðasta mótið í þessum flokki.
Tefldar verða 7 umferðir með 4 + 2 mín.
Skákdómari verður Róbert Lagerman en mótstjóri er Hörður Jónasson.
Mótið verður reiknað til hraðskákstiga.
Stutt hlé verður eftir 4 umferðir og verða starfsmenn með kaffi og vöfflur til sölu á staðnum.
Verðlaun:
Sigurvegari í hverju móti fær peningaverðlaun að upphæð 2.500 kr.
Efstu 3 skákmenn fá líka Gull, Silfur og Brons verðlaunapeninga.
Ennfremur tengjast öll mótin saman, þannig að 1. Sætið fær 10 stig, 2. Sætið 8 stig, 3. sætið 6 stig, 4. sætið 4 stig og 5. sætið fær 2 stig.
Samanlögð stig úr öllum mótunum fær efsti maður 10.000 kr.
Staðan á 3 efstu á Grand Prix eftir Vinaslag 3.
- Róbert Lagerman 24 stig.
- Andrii Prudnykov 16 stig.
- Olga Prudnykova 12 stig.
Þegar skráðir menn: Vinaslagur 4 hjá Vinaskákfélaginu 2022
Einnig getið þið skráð ykkur á staðnum.
Allir velkomnir!!
Skráning hér fyrir neðan:
Kv. Stjórn Vinaskákfélagsins.