3 efstu ásamt forseta Vinaskákfélagsins

Vignir Vatnar sigraði á Alþjóðlega Geðheilbrigðisskákmótinu 2024.

Eitt af skemmtilegustu skámótum ársins var haldið fimmtudaginn 17 október, en þá var Alþjóða geðheilbrigðis skákmótið haldið með pomp og prakt. 24 skákmenn og konur mættu til leiks og var hart barist.

Vinaskákfélagið hefur skipulagt þetta skákmót undanfarin 18 ár, ásamt Taflfélag Reykjavíkur.

Alþjóðlega Geðheilbrigðis skákmótið er haldið í tilefni þess að 10 október ár hvert er haldin Alþjóðlegi Geðheilbrigðis dagurinn.

Skákstjóri var Guðlaugur Gauti Þorgilsson frá TR og skipuleggjandi var Hörður Jónasson.

Tefldar voru 9 umferðir með tímamörkunum 4 mín. + 2 sek.

Sigurverandi var Vignir Vatnar Stefánsson en hann fékk 9 vinninga af 9 möguleikum.

Vignir Vatnar sigraði Alþj. Geðheilbrigðis mótið 2024.

Glæsileg verðlaun voru á mótinu og svo var Birnukaffi á sínum stað og vil ég þakka henni Birnu Halldórsdóttir fyrir að skákmenn og konur fóru ekki svangir heim.

Brot af kræsingum frá Birnu á Geðheilbrigðis mótinu

Vinaskákfélagið vill þakka Skruddu bókaforlaginu sérstaklega fyrir þeirra þátt í að styrkja félagið með bókagjöfum.

Hörður Jónasson forseti Vinaskákfélagsins hélt smá ræðu í upphafi móts og lék fyrsta leikinn fyrir Helga Pétur Gunnarsson á móti Vignir Vatnar.

Eftirfarandi skákmenn fengu verðlaun:

  1. Sæti: Vignir Vatnar Stefánsson
  2. Sæti: Mikael Jóhann Karlsson
  3. Sæti: Magnús P. Örnólfsson

Konur: Iðunn Helgadóttir

50 +: Magnús P. Örnólfsson

U16: Theodor Eiriksson  

Öll úrslit er hægt að sjá hér: Alþj.Geðheilbrigðis skákmótið 2024

Stjórn Vinaskákfélagsins vill svo þakka öllum sem tóku þátt bæði skákstjóra og keppendum.

Kveðja, Hörður Jónasson forseti Vinaskákfélagsins.

x

Við mælum með

65 ára afmælis skákmót Harðar Jónassonar

Hið árlega sumarskákmót Vinaskákfélagsins verður haldið mánudaginn 15 júlí 2024, kl: 13, í Vin að ...