Hið árlega Nýársskákmót Vinaskákfélagsins verður haldið laugardaginn 7 janúar á Aflagranda 40. Mótið hefst klukkan 14:00 stundvíslega.
Mótið er 7 umferðir með 4 mín. + 2 sek.
Mótið verður reiknað til hraðskákstiga.
Skákdómari verður Róbert Lagerman en mótstjóri er Hörður Jónasson.
Stutt hlé verður eftir 4 umferðir og verða starfsmenn með kaffi og vöfflur til sölu á staðnum.
Verðlaun:
- Gull peningur + Skákbók.
- Silfur peningur + Skákbók.
- Brons peningur + Skákbók.
Allir velkomnir.
Hægt er að sjá hverjir hafi skráð sig hér: Nýársskákmót Vinaskákfélagsins 2023
Einnig hægt að skrá sig á staðnum.
Mætið tímanlega.
Kveðja stjórn Vinaskákfélagsins.