Hópmynd af þátttakendum í Fjölteflinu 3 júlí 2023

Glæsilegt fjöltefli í Vin í sól og sumaryl 3 júlí 2023.

Það var ekki amalegt veðrið sem lék við skákmenn í Vin, þegar Helgi Áss Grétarsson kom og tefldi fjöltefli við 9 manns.

Þetta fjöltefli var gert í tilefni 20 ára afmæli Vinaskákfélagsins.

9 skákmenn tóku þátt og fengu þeir 15 mín. + 10 sek. En Helgi Áss fékk 30 mín. + 10 sek.

Aðeins skákmenn undir 2000 skákstigum fengu að tefla.

Við fengum Sæma Rokk til að leika fyrsta leikinn fyirr Helga Áss á móti Herði Jónassyni.

Sæmi Rokk leikur fyrsta leikinn milli Helga og Harðars í Fjölteflinu

Þeir sem tefldu voru og úrslit:

  1. Hörður Jónasson 0-1
  2. Arnljótur Sigurðsson 0-1
  3. Hjálmar Sigurvaldason 0-1
  4. Jóhann Vladimarsson 0-1
  5. Ricardo Jimenez 0-1
  6. Jón Gauti Magnússon 0-1
  7. Gunnar Gestsson 0-1
  8. Runólfur Ingi Ólafsson 0-1
  9. Guðmundur Kristjánsson 1-0

Guðmundur Kristjánsson var sá eini sem vann Helga (hann féll á tíma).

Don Roberto hinn eini sanni var vöfflumeistari á meðan fjölteflið var. Það var ekki af verri endanum en ásamt sultu og rjóma, þá voru líka í boði jarðaber og bláber og einnig hægt að gæða sér á kleinum.

Allir skemmtu sér konunglega.

Í lok fjölteflisins afhenti forseti Hörður svo Heiðursverðlaun til Arnars Valgeirssonar fyrir vel unnin störf í þágu Vinaskákfélagsins.

Kveðja, stjórn Vinaskákfélagsins.

x

Við mælum með

Vinaskákfélagið fékk styrk frá Styrktarsjóði Geðheilbrigðis 2024.

Sú gleðilega frétt barst okkur í stjórn Vinaskákfélagsins fyrir nokkrum dögum að við hefðum fengið ...