Mynd frá Geðmótinu 2023

Alþjóðlega Geðheilbrigðisskákmótið 2024.

Alþjóða geðheilbrigðisdagurinn er haldinn 10. október ár hvert og hefur Vinaskákfélagið skipulagt þetta skákmót undanfarin 18 ár, og í samvinnu við Taflfélag Reykjavíkur.

Mótið verður haldið, fimmtudaginn, 17. Október í húsnæði Taflfélags Reykjavíkur og hefst klukkan 19:30. Húsið opnar klukkan 18:30.

Birnukaffi verður á sínum stað á mótinu!

Tefldar verða 9 umferðir með tímamörkunum 4 mín. + 2 sek.

Skákstjórn verður í höndum TR, En verðlaun og skipulagning í höndum Vinaskákfélagsins.

Hlé verður gert eftir 5 umf. Til að skákmenn geti fengið sér kaffi og vöflur.

Glæsileg verðlaun verða á mótinu eins og venjulega og vill Vinaskákfélagið þakka Skruddu bókaforlaginu sérstaklega fyrir þeirra þátt í að styrkja félagið með bókagjöfum.

Eftirfarandi verðlaun eru þessi:

  1. 1. Sæti: Gull peningur + Bikar og bók.
  2. 2. Sæti: Silfur peningur + bók.
  3. 3. Sæti: Brons peningur + bók.
  4. 1. Sæti: Kvennaverðlaun: Gull peningur + bók.
  5. 1. Sæti: 50 +: Gull peningur + bók.
  6. 1. Sæti: U16: Gull peningur + bók.

Skráning fer fram á staðnum.

Sigurvegari 2023 var: Vignir Vatnar Stefánsson.

Fólk er beðið um að koma snemma til að skrá sig.

Allir velkomnir!!

x

Við mælum með

65 ára afmælis skákmót Harðar Jónassonar

Hið árlega sumarskákmót Vinaskákfélagsins verður haldið mánudaginn 15 júlí 2024, kl: 13, í Vin að ...