Forsíða

  • Sumarskákmót Vinaskákfélagsins í Vin

  • Forseti afhendir heiðursverðlaun til Róberts Lagermans

  • Hörður og Róbert taka á móti Hrafninum, bronsstyttu 2024

  • Gjaldkeri afhendir heiðursverðlaun til Harðar Jónassonar 2025

  • Hluti stjórnar Vinaskákfélagsins 2025

  • Vinaskákfélagið fær viðurkenningu frá FIDE

  • Sigurvegarar í Friðriksskákmóti Vinaskákfélagsins 2026

Árshátíð Vinaskákfélagsins 2026

Staður: Hereford steikhús. Dagsetning og klukka: 21 apríl, kl. 19:00. Forréttur: Húmarsúpa að hætti Hereford Steikhús. Aðalréttur: 200 gr. nautalund borin fram með steiktu grænmeti og bökuðum kartöflum. Desert: Súkkulaðikaka með ís og berjum. Kostnaður: 10.900 kr. Afsláttur Vinaskak: 4.000 kr. Samtals kostnaður: 6.900 kr. Ath. drykkir eru ekki innifaldir. Kveðja, stjórn Vinaskákfélagsins. Skráning hér fyrir neðan.

Lesa »

Aðalfundur Vinaskákfélagsins 2026.

Aðalfundur Vinaskákfélagsins verður haldinn þriðjudaginn 5 maí 2026 á Aflagranda 40, klukkan 19:00. Á stjórnarfundi 17 mars 2026, var ákveðið að færa lið 6 Lagabreytingar framar og mun hann færast frá lið 6 til lið 4. Aðrir liðir breytast ekki. Dagskrá aðalfundar er sem hér segir: 1. Forseti setur fundinn. 2. Kosning fundarstjóra. 3. Kosning ritara. 4. Lagabreytingar. 5. Skýrsla ...

Lesa »

Róbert Lagerman sigraði á Páskaskákmóti Vinaskákfélagsins 2026.

Í dag 23 mars 2026 var haldið glæsilegt Páskaskákmót Vinaskákfélagsins í Vin Dagsetur. Teflar voru 6 umferðir með 7 mín., á klukkunni. 14 manns mættu til leiks. Sigurlaug lék fyrsta leikinn hjá Ólafi Thorssyni gegn Erlingi Arnarsyni. Róbert Lagerman sigraði mótið með 5,5 vinninga. 2 sæti varð Tómas Björnsson með 5 vinninga. 3 sæti varð Aðalsteinn Thorarensen með 4 vinninga. ...

Lesa »

Páskaskákmót Vinaskákfélagsins 23 mars 2026.

Páskaskákmót Vinaskákfélagsins verður haldið í Vin, Hverfisgötu 47 í Reykjavík, mánudaginn 23 mars kl. 13:00. Eins og ávalt hjá Vinaskákfélaginu verða góðir vinningar í boði. Skákdómari verður Róbert Lagerman og mótstjóri er Hörður Jónasson Í hléi verður hægt að gæða sér á kaffi og kökum. Tefldar verða 6 umferðir með 7 mín á klukkunni. Mótið verður reiknað til hraðskákstiga. Verðlaun ...

Lesa »

Róbert Lagerman vann Friðriksskákmótið 2026.

Vinaskákfélagið hélt glæsilegt skákmót á fæðingardag Friðriks Ólafssonar stórmeistara 26 janúar. Þetta er í 3ja sinn sem við höldum þetta mót. Mótið var haldið í Vin Dagsetur á Hverfisgötu 47. Glæsilegur farandbikar “Friðriksbikarinn”, fær sá sem vinnur nafn sitt skráð á hann. Þetta skákmót hefur verið ákveðið að halda árlega héðan í frá á afmælisdegi Friðriks 26 janúar eða í ...

Lesa »

Friðriksskákmót Vinaskákfélagsins 2026

Vinaskákfélagið mun halda glæsilegt skákmót á fæðingardag Friðriks Ólafssonar. Skákmótið verður haldið mánudaginn 26 janúar klukkan 13:00 í Vin Dagsetur á Hverfisgötu 47. Vinaskákfélagið ætlar að halda þetta mót árlega og verður stórglæsilegur Farandbikar sem heitir “Friðriksbikarinn” sem sá sem vinnur fær nafn sitt skráð á hann. Þetta er í þriðja sinn sem við höldum þetta mót. Tefldar verða 6 ...

Lesa »

Gleðileg skákjól.

Vinaskákfélagið óskar öllum gleðilegra jóla og farsælla komandi skákárs! Allt það helsta sem Vinaskákfélagið hefur gert á árinu þ.e. skákmót og viðburðir er hægt að sjá betur í Gáttinni: Gáttin Kveðja frá stjórn Vinaskákfélagsins.

Lesa »

Vinaskákfélagið gefur töfl og skákklukku til Starengi 6.

Í dag miðvikudaginn 10 desember 2025 gaf Vinaskákfélagið 2 töfl og eina skákklukku til Athvarfsins Starengi 6 í Grafarvogi. Tíminn var nýttur á sama tíma og Jólamótið á Kleppi var. Þetta var tíunda gjöf félagsins. Afhending fór fram á Kleppi og þeir sem tóku á mólti gjöfinni voru: Bjarki Garðasson, Hrólfur K. Valdimarsson og Gilbert Þór Jökulsson. Hörður Jónasson forseti ...

Lesa »